Rekstrarkostnaður skilanefndar og slitastjórnar Glitnis á árinu 2009

Vegna fyrirspurna fjölmiðla veitir skilanefnd og slitastjórn Glitnis hér með yfirlit um heildar rekstrarkostnað á árinu 2009. Mikilvægt er að hafa í huga að kostnaður við rekstur búsins greiðist af kröfuhöfum sem eru að stærstum hluta erlendir aðilar eða um 80%. Fulltrúar kröfuhafa fylgjast náið með starfsemi Glitnis og eru þeir upplýstir ýtarlega um framvindu mála reglulega. Til að hámarka virði þeirra eigna sem eru í búi Glitnis hafa fulltrúar kröfuhafa lagt ríka áherslu á að leitað sé ráðgjafar og aðstoðar hjá færustu sérfræðingum á hverju sviði. Vegna umfangs búsins og flókinna verkefna sem við er að fást hefur eðli málsins samkvæmt reynst nauðsynlegt að leita til alþjóðlegra sérfræðinga í ríkum mæli.

Rekstrarkostnaður 2009 (í milljónum króna)
Laun og launatengd gjöld 300
Íslandsbanki - þjónustusamningur 728
Sérfræðikostnaður 3.377
  - þar af innlendir aðilar 732
  - þar af erlendir aðilar 2.645
Ýmis kostnaður 166
Samtals 4.571

Samanlagður kostnaður skilanefndar og slitastjórnar Glitnis á árinu 2009 nam 4,6 milljörðum íslenskra króna. Heildareignir búsins, án niðurfærslu og skuldajöfnunar, námu1.898 milljörðum króna í lok júní 2009. Rekstrarkostnaður sem hlutfall brúttó heildareigna nam því 0,25% á árinu 2009. Heildareignir eftir niðurfærslu og skuldajöfnun námu 723 milljörðum. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af heildareignum nettó nam því 0,65%.  

Laun og launatengd gjöld vegna starfsmanna námu 0,3 milljörðum króna en meðalfjöldi starfsmann á árinu var 22. Greiddir voru til Íslandsbanka á árinu 0,7 milljarðar króna en bankinn veitir Glitni margvíslega þjónustu samkvæmt þjónustusamningi og má þar meðal annars nefna, kerfisleigu, tölvuþjónustu, bakvinnslu, fjármála- og bókhaldsþjónustu auk vinnu vegna gagnaöflunar fyrir opinbera aðila eins og rannsóknarnefnd Alþingis, sérstakan saksóknara, skattrannsóknarstjóra og ríkisskattsstjóra.

Aðkeypt sérfræðiþjónusta að meðtöldum virðisaukaskatti þegar við á nam 3,4 milljörðum. Þar af námu greiðslur til erlendra aðila 2,6 milljörðum króna en 0,7 milljörðum króna til  innlendra aðila. Inni í tölum um aðkeypta þjónustu innlendra aðila eru greiðslur til þeirra sem starfa í skilanefnd og slitastjórn Glitnis. Gera má ráð fyrir að kostnaður vegna aðkeyptrar sérfræðiaðstoðar muni fara lækkandi á næstu misserum en eðli málsins samkvæmt er slíkur kostnaður mestur fyrstu tvö til þrjú árin í slitaferlinu.

Þeir erlendu aðilar sem keypt var mest þjónusta af á árinu 2009 voru þessir (í stafrófsröð):

  • •    Arntzen de Besche Advokatfirma AS, lögfræðistofa, Noregi
  • •    BCF, lögfræðistofa Canada
  • •    Cadwalader, lögfræðistofa. UK
  • •    Deloitte, endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtæki, UK
  • •    Deutsche Bank, UK
  • •    DLA Piper, London, lögfræðistofa, UK
  • •    Forretningsadvokatene, lögfræðistofa, Noregi
  • •    Houlihan Lokey, ráðgjafafyrirtæki, UK
  • •    KROLL, fjármálarannsóknarfyrirtæki, UK
  • •    KEWS Clifford Change, lögfræðistofa, UK
  • •    Morrison & Forrester, lögfræðistofa, USA og UK
  • •    McGuireWoods, lögfræðistofa, UK
  • •    McCann FitzGerald, lögfræðistofa, Írland
  • •    O´Melveny & Myers LLP, lögfræðistofa, USA
  • •    Schneider;Schwegler, lögfræðistofa, Þýskalandi
  • •    Slaughter & May, lögfræðistofa, UK
  • •    Steptoe & Johnson LLP, lögfræðistofa, USA
  • •    Sungard, fjármálaráðgjafar, UK
  • •    UBS, Fjárfestingabankaráðgjöf, UK og USA

Innlendir aðilar (í stafrófsröð) sem seldu Glitni þjónustu fyrir 5 milljónir króna eða meira á árinu 2009 voru þessir:

  • •    AT ráðgjöf ehf.
  • •    BBA Legal ehf.
  • •    BT sf.
  • •    Borgarlögmenn ehf.
  • •    Deloitte hf.
  • •    Ernst & Young hf.
  • •    Gagnavarslan ehf.
  • •    Jónatansson & Co. lögfræðistofa ehf.
  • •    Juris hf.
  • •    KPMG hf.
  • •    Krónos ehf.
  • •    Lausnir lögmannsstofa sf.
  • •    LM lögmenn sf.
  • •    Lex ehf.
  • •    Logos slf.
  • •    Mörkin lögmannsstofa hf.
  • •    Lögfræðimiðstöðin ehf.
  • •    Lögfræðiráðgjöf Páls E slf.
  • •    Safn ehf.

Print